au

Korpúlfsstaðir.......menning

Jæja nú er ein helgin liðin í viðbót og framundan er gerð heimildarmyndar um Korpúlfsstaði sem þarf að klára fyrir miðjan mánuðinn. Þarna munu starfa um 30 listamenn og 8 hönnuðir þegar allt er tilbúið. Enn er smíðavinna í gangi og verið að innrétta vinnustofur og leggja lokahönd á málningarvinnu,  rafmagn og fleira.

Þegar gengið er um bygginguna í dag þá speglast fortíðin vel á móti manni. Veggjakrot fyrri tíma segja sögu. Stigar, gangar, gluggar og minjar spegla kraftinn sem þarna er í þessu sögufræga húsi. Kraftur lista og mennigar munu fylla vinnustofur og sali á komandi mánuðum og árum. Þessi tími breytinga er spennandi og langar mig að fanga það viðfangsefni í heimildarmyndinni.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband