au

Færsluflokkur: Heilbrigðismál

Saga eldgosa segir: 75% skepna drapst í Móðuharðindunum. Forðum þeim í burt!!!

Það er sorglegt að sjá hve allir eru rólegir yfir skepnunum á gossvæðinu.  Því er ekki sett af stað hjálp til handa bændum við að forða skepnum þeirra í öruggt umhverfi. Amk. 300 km frá Eyjafjallajökli. Nóg er af landrými amk. og minni hætta þar. Munum að tennur skepna þola ekki útiveru núna og flúor eitrar. Setjum af stað björgunaraðgerðir strax.

PrimaCare-kærkomin viðbót á þjónustu við útlendinga!

Mörgum erlendum ferðamönnum finnst Ísland hafa sérstakt umhverfi og sérstaka menningu, eins og baðmenningu. Einnig finna þeir vel fyrir hreina loftinu og drykkjarvatnið vekur áhuga. Eitthvað ekta í umhverfinu heillar þá!!!

Síðast í gær var ég spurð af erlendum farþega (starfa sem leiðsögumaður) hvað ferðapakki myndi kosta til Íslands í tíu daga með innifalinni heilsumeðferð. Ég hugleiddi svarið...(farþeginn stundar nálastungur í Kaliforníu). Ég vissi þá að heilsuhæli og frekari meðferðir eins og aðgerðir bjóðast ekki hér á landi fyrir útlendinga, nema þeir hafi tilskilin réttindi skv. íslenskum lögum og hafi verið búsettir hér á landi í tiltekinn tíma. Því nefndi ég einungis við ferðamanninn heilsulindirnar (spa) og sundlaugarnar . PrimaCare verður því góð viðbót sem tengja má beint inn í ferðaþjónustuna. Svar okkar leiðsögumanna verður því í framtíðinni skýrara og nær lengra inn í það sem útlendingarnir eru að sækjast eftir!

Þörfin er mikil á aðgerðum og annarri heilbrigðisþjónustu fyrir útlendinga, því að bara í Bandríkjunum fá um 25% sjúklinga enga heilbrigðisþjónustu vegna mikils kostnaðar fyrir þá. Getum við því búist við góðri nýtingu á heilbrigðisþjónustu hjá fyrirtækjum eins og PrimaCare. Gleðitíðindi einnig fyrir þá heilbrigðisstarfsmenn sem munu missa vinnu sína hjá ríkinu.

Til hamingju PrimaCare!

 

 


mbl.is Einkasjúkrahús í Mosfellsbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband