au

Færsluflokkur: Samgöngur

Á móti eyðslu í göng þarna. SV-hornið á núna að ganga fyrir.

Á móti eyðslu í göng þarna. Suðvesturhorn landsins á að ganga fyrir og peningum til vegaframkvæmda er betur varið þar. 70% allra alvarlegra umferðarslysa á sér stað á suðvesturhorninu!!! Þar búa einnig 65% af landsmönnum.

Steingrímur J. Sigfússon það er ótímabært að fara í þessar framkvæmdir núna. Stöðvum frekar fyrirhugaða vegaskatta út úr Reykjavík og aukum framkvæmdir á SV-horninu fyrir 10 milljarða króna.


mbl.is Veggjaldið verður hóflegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ákall til ríkisstjórnar: fjöldi dauðaslysa og alvarlegra slasaðra hefur aukist á Íslandi sl. ár.

Opinber gögn upplýsa að 12 manns létust hér í umferðinni árið 2008 og 15 árið áður. Tvö árin þar á undan sýna mun færri látna í umferðinni. Þessar vísbendingar eru ógnvekjandi. Við erum aðeins í 12 sæti í dag mv. höfðatölu yfir hve fáir látast í umferðinni, en Svíþjóð er í 1. sæti

Notkun á stórum jeppum í borgum hefur aukist sl. ár. Ölvunarakstur einnig! Þarf ekki að stilla saman strengi og auka umferðaröryggi? Hvar eru stjórnvöld, týnd?

Um 70% af dauðslysum og meiriháttar slysum eiga sér stað hér á suð-vesturhorninu skv. skýrslum um málið.  Því er mikilvægt að beina framkvæmdum strax á höfuðborgarsvæðisins og byrja að byggja mislæg gatnamót á helstu slysastöðunum. Einnig skerpa á eftirliti og kunnáttu ökumanna stórra ökutækja eins og Hummerjeppa.  Einnig auka öryggi ökumanna sem fara um Reykjanesbraut, Suðurlandsveg og Vesturlandsveg. Einnig auka umferðaröryggi á vegum nálægt Akureyri og stærri bæjum.

Ég vona að ungi maðurinn sem liggur stórslasaður eftir Hummerjeppann nái sér og megi ná að njóta lífs hér með okkur hinum í þjóðfélaginu í framtíðinni. Sendi baráttukveðjur til aðstandanda.

Sjálf er ég meiraprófsbílstjóri og veit að stjórn á stórum ökutækjum krefst mikillar ábyrgðar. Einnig vil ég minna á vefsíðu Neytendasamtakanna ns.is um baráttu fyrir auknu framlagi til umferðaröryggismála, sjá ályktun um umferðaröryggi frá 22. janúar 2009, á forsíðu vefsíðunnar.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband